07.08.1914
Neðri deild: 37. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 927 í B-deild Alþingistíðinda. (885)

39. mál, sala á jörðinni Núpi í Öxarfirði

Pétur Jónsson:

Eg ætla ekki að fara að halda svo sem neina ræðu, heldur aðeina að minna á það, sem eg sagði í gær við fyrri hluta þessarrar umr. og við 1. umr. um aðalatriði málsins, og endurtaka það, að eg álít óráðlegt að selja jörðina, þar sem ekki eru eftir óseldar nema 2 þjóðjarðir í þessarri sveit, og ekki er ólíklegt, að læknirinn kjósi heldur að sitja þarna, en á Kópaskeri, þegar jörðin losnar.