28.07.1914
Neðri deild: 23. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 398 í B-deild Alþingistíðinda. (933)
83. mál, styrkur fyrir Vífilsstaði
Umboðsm. ráðherra (Klemens Jónsson):
Eg verð því miður að taka undir með háttv. 2. þm. Rangv. (E. P.) — því miður segi eg, vegna þess máls, sem hér liggur fyrir — að eg tel það ótvírætt mál, að fjárveitingar úr landssjóði, á þann hátt sem hér er farið fram á, komi í bága við stjórnarskrána, og hafði eg satt að segja búist við því, að hæstv. forseti mundi vísa máli þessu frá og leyfa því ekki að koma á dagskrá. Það stendur skýrum orðum í 24. grein stjórnarskrárinnar, að ekkert gjald megi greiða af hendi nema heimild sé fyrir því, annaðhvort í fjárlögum eða í fjáraukalögum. Þá einu heimild, sem nú er til um fjárveitingar á yfirstandandi fjárhagstímabili, er því að finna í gildandi fjárlögum. Nú áleit stjórnin æskilegt að fá ýmsar nýjar fjárveitingar, og þess vegna lagði hún frumv. til fjáraukalaga fyrir þingið. Það hefir eins og kunnugt er orðið, verið felt í þessari háttv. deild og getur því ekki verið um neina aðra heimild að tala til útborgunar en þá, sem er í gildandi fjárlögum og þeim lögum, sem samþykt vóru á þinginu í fyrra, samkvæmt 22. gr. fjárlaganna.
Að öðru leyti skal eg leyfa mér að benda á, að það er auðvitað hlutverk deildaforsetanna að ábyrgjast að frumvörp, sem stríða á móti stjórnarskránni, verði ekki borin upp í þinginu, og það sama er á ábyrgð forsetans hér að þessu sinni.