13.07.1914
Neðri deild: 10. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1000 í B-deild Alþingistíðinda. (975)
45. mál, ritsíma og talsímakerfi Íslands
Flutningsm. (Stefán Stefánsson):
Jafnvel þótt hv. þm. S.-Þing. (P. J.) kallaði það viljandi, að eg tilnefndi tölur úr skýrslu landssímastjórans, sem sýna, hvað Siglufjarðarsíminn gæfi af sér, þá get eg ekki tekið mér það nærri, þar sem tölurnar liggja fyrir framan hvern hv. þm., svo að hver einstakur getur sjálfur séð þær og athugað. Það er rétt, að allmikið af tekjunum gengur til sæsímans. Því hefi eg alls ekki heldur neitað, en þar gefur hv. þm. allsendis ranga skýrslu, því sé teknar til greina allar stöðvar á línunni, eins og eg gerði, þá verða hreinar tekjur yfir árið um 5 þús. kr. Annara lít eg svo á, að full sanngirni mæli með því, að sæsímagjaldið af stöðinni á Siglufirði sé til greina tekið, henni til meðmæla að þessu leyti, því að það sýnir, hvers má vænta um beinar tekjur að enduðum samningstímanum við það Stóra Norræna.
Þar sem það er talið varhugavert að færa þessa línu í 1. flokk, þá má benda á Vestmannaeyjasímann til samanburðar, sem strax var settur í 1. flokk. Ef nokkurt »princip« er til í þessu máli þá hefir það verið brotið þar. (Bjarni Jónsson: Það var gert fyrir Stóra norræna). Mér þykir næsta undarlegt, ef einstakir þingmenn fara að leggjast í móti þessari kröfu, þar sem landssímastjórinn sjálfur hefir fallist á, að hún væri bæði réttmæt og eðlileg. Í nefndarálitinu frá símanefndinni í efri deild í fyrra stendur:
Í samtali sínu við nefndina lét landssímastjórinn í ljós, að hinar miklu tekjur af Siglufjarðarlínunni mælti í raun og veru með henni, og að hann teldi ekki óréttlátt, að endurborgað yrði meira eða minna af fé því, — 10 þúsund krónum, — er viðkomandi héruð hefði lagt til sæsímans».
Eg veit ekki, hvað menn vilja hafa þetta greinilegra, og vilji menn bera fyrir sig álit þessa manns, þá er það þetta, enda er það í fylsta samræmi við það, er hann lét í ljós í samtali við mig á síðasta þingi.
Þó að nú þessi lína verði tekin í 1. flokk, þá er ekki alveg loku skotið fyrir, að sveitin taki einhvern þátt Í rekstri stöðvarinnar. (Pétur Jónsson: Þá á hún ekki heima í 1. fl.). Það út af fyrir sig gæti verið samningamál. En þar sem símastöðin á Siglufirði hefir ekki einasta greitt stórtekjur til símana, heldur einnig orðið að sjá um rekstur stöðvarinnar árl. að nokkru leyti, þá skil eg ekki, að margir hinna hv. þm. snúist á móti þessari kröfu, þegar þeir hafa áttað sig á málinu.