30.07.1915
Neðri deild: 20. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í B-deild Alþingistíðinda. (1256)
56. mál, fjáraukalög 1914 og 1915
Framsögum. (Pjetur Jónsson):
Jeg ætla ekki að standa upp til þess að halda neina ræðu í þetta skifti. Jeg vil að eins leyfa mjer að geta þess, að með brtt. nefndarinnar, ef þær verða samþyktar, hækka aðalupphæð frumv. um 4650 krónur, eða alls upp í 89000 kr. Þær hafa því ekki mikla fjárhagslega þýðingu. Jeg mæli með því, að frumvarpið fari umræðulaust til 2. umr.