02.08.1915
Neðri deild: 22. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í B-deild Alþingistíðinda. (1258)

56. mál, fjáraukalög 1914 og 1915

Framsögum. (Pjetur Jónsson):

Jeg ætla ekki að halda neina ræðu. Jeg tel það óþarft, því að málið liggur svo ljóst fyrir, og engar verulegar brtt. við frumvarpið hafa komið fram. Jeg gjöri ekki ráð fyrir, að menn vilji neinar umræður, en ef einhver kynni að óska skýringa um eitthvert atriði er jeg til andsvara.