27.07.1915
Neðri deild: 17. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 597 í B-deild Alþingistíðinda. (1305)

33. mál, viðskiptabréfaógilding

Jón Magnússon:

Jeg sje enga ástæðu til að vera að skipa nefnd í þetta mál. Jeg kem ekki auga á neitt atriði í frumvarpinu, sem nefnd mundi lagfæra eða breyta á nokkurn hátt, og vil því leggja á móti því, að nefnd verði skipuð, því það er ekki til annars en tefja tíma þingsins.