10.07.1915
Neðri deild: 3. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 618 í B-deild Alþingistíðinda. (1350)

40. mál, gullforði Íslandsbanka

Jón Magnússon:

Jeg leyfi mjer að leggja til, að þessu frv. verði vísað til 2. umr. Af því að jeg býst við, að það komi fram fleiri frv., sem snerta bankamál, leyfi jeg mjer að stinga upp á, að 7 manna nefnd yrði kosin í þetta mál, og gjöri þá jafnframt ráð fyrir, að öllum frv., sem fram koma og snerta bankamál, verði vísað til þeirrar nefndar.