21.07.1915
Neðri deild: 12. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 622 í B-deild Alþingistíðinda. (1361)

18. mál, útflutningsbann á breskum vörum

Ráðherra:

Frv. þetta er stjórnarfrumv., og var lagt fram í hv. Ed. og er nú þaðan komið hingað með nokkrum breytingum. Jeg býst við því, að það muni þykja hlýða, að það sje athugað í nefnd, og leyfi mjer þá að leggja það til, að því verði vísað til dýrtíðarnefndar.