12.08.1915
Neðri deild: 31. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 626 í B-deild Alþingistíðinda. (1375)

59. mál, vélstjóraskóli í Reykjavík

Ráðherra:

Það voru að eins örfá orð út af ræðu háttv. framsm. (M. Ó.). Þegar jeg átti tal við hann um þetta mál, þá fullyrti jeg ekki, að íslenskir vjelstjórar gætu fengið atvinnu í Danmörku, en jeg bjóst við að Danir yrðu fúsir á að veita slíkt, ef sama kemur á móti.