20.08.1915
Neðri deild: 38. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 727 í B-deild Alþingistíðinda. (1478)

100. mál, seðlaauki Íslandsbanka

Forseti:

Út af ummælum, sem fram hafa komið um það, að brtt. á þgskj. 453 hafi ekki verið borin út í gær, skal jeg geta þess, að samkvæmt tilkynningu frá skrifstofunni hefir brtt. verið útbýtt í gær. En fyrst raddir hafa heyrst í andstæða átt, þykir mjer varlegra að leita leyfis hæstv. ráðherra og samþykkis háttv. deildar um afbrigði frá þingsköpunum, þannig, að ræða megi þessa tillögu.

Var þá leitað afbrigða frá þingsköpunum og þau veitt á venjulegan hátt.