28.07.1915
Neðri deild: 18. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 749 í B-deild Alþingistíðinda. (1531)
45. mál, ráðstafanir út af Norðurálfu-ófriðnum
Framsögum. meiri hl. (Sveinn Björnsson):
Jeg finn ekki ástæðu til að fara neitt rækilega út í málið nú við 1. umr., en læt mjer nægja að vísa til nefndarálitsins. Brtt. þær, sem fram hafa komið við frv., snerta einstök atriði, sem ekki er ástæða til að ræða að svo stöddu. Jeg vænti, að háttv. deild sje á sama máli og nefndin um það, að nauðsynlegt sje að setja lög um þetta efni, og geti því vísað frv. til 2. umr. án frekari umræðu í þetta skifti.