30.07.1915
Neðri deild: 20. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 887 í B-deild Alþingistíðinda. (1683)

41. mál, löggiltir vigtarmenn

Bjarni Jónsson:

Jeg þakka auðmjúklega, háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) fyrir tillátssemi hans við mig. En annars vil jeg benda háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) á það, að eignarfallið af kvenkynsorðinu vog er ekki hið sama og af vogur. Er það ilt, ef háttv. þm. eru ekki sæmilega kunnandi í móðurmáli sínu.