17.08.1915
Neðri deild: 35. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 897 í B-deild Alþingistíðinda. (1707)

104. mál, útflutningsgjald

Bjarni Jónsson:

Jeg ætla að eins að gjöra þá athugasemd, að jeg get ekki verið með þessu undir neinum kringumstæðum, ekki heldur þótt þingið ákveði það af mildi sinni, að helmingurinn skuli vera kyrr í vasa manna af því fje, sem átti að vera þar kyrt alt.