06.09.1915
Neðri deild: 52. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 917 í B-deild Alþingistíðinda. (1760)

65. mál, áfengir drykkir

Framsm. Sveinn Björnsson):

Jeg vænti þess, að háttv. þingdeildarmenn hafi lesið álit nefndarinnar. Þar er alt sagt, sem hægt er að segja um þetta mál. Nefndin hefir öll orðið sammála um að samþykkja frumvarp þetta óbreytt, eins og það kom frá háttv: Ed. Jeg þarf þess vegna ekki að orðlengja málið frekar.