06.09.1915
Neðri deild: 52. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1190 í B-deild Alþingistíðinda. (1989)

142. mál, steinolía, bensín og áburðarolía

Flutningsm. (Matthías Ólafsson):

Þetta mál er svo ljóst og skýrt, að jeg skil ekki annað en háttv. þingdeildarmenn sjái, að hjer er um nauðsynjamál að ræða fyrir sjávarútveginn. Vænti jeg því, að deildin leyfi að málið sje tekið fyrir.

Forseti leitaði síðan, að fengnu leyfi ráðherra, samþykkis deildarinnar, til þess að frumv. yrði tekið fyrir. Var það leyft með öllum þorra atkvæða.