15.09.1915
Neðri deild: 63. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1280 í B-deild Alþingistíðinda. (2048)

109. mál, skipun dýralækna

Framsögum. meiri hl. (Bjarni Jónsson):

Jeg þarf ekki að segja annað en það, að nefndin felst á, að frumv. verði samþ. óbreytt. Breytingar þær, sem háttv. Ed. hefir gjört, álítum við hvorki til bóta nje skaða.