12.07.1915
Neðri deild: 4. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1306 í B-deild Alþingistíðinda. (2082)

95. mál, stofnun Landsbanka

Forseti:

Út af framkominni ósk um, að taka þetta mál út af dagskrá, skal jeg geta þess, að það verður tekið til athugunar að umræðu lokinni. En jeg skildi þessa ósk ekki svo, sem til þess væri ætlast, að umræðum yrði hætt nú þegar, og verður þeim því haldið áfram.