16.07.1915
Neðri deild: 8. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1357 í B-deild Alþingistíðinda. (2118)
11. mál, verðtollur
Ráðherra:
Jeg býst ekki heldur við því, að jeg muni þreyta háttv. þingdeild með löngu máli í þetta sinn. Annars skal jeg játa það, að jeg bjóst við því, að háttv. flutnm. (B. J.) mundi mæla mörg og fögur orð með frumvarpi sínu, fyrst hann er því hlyntur, að tollur sje miðaður við verð, en ekki þunga.
Jeg skal ekkert fara út í það, hvor stefnan muni heppilegri. En benda vil jeg á það, að svo er að sjá sem þetta frumv. sje mjög laklega undirbúið. Mun háttv. flutnm. (B. J.) líklega hafa tekið upp óbreytt frumv. það um verðtoll, sem lá fyrir þinginu 1912; en með þarf að hin almennu tolllög hafa breytst síðan, þá hefði háttv. flutnm. átt að taka það til greina; svo er það og óviðkunnanlegt, að sjá vitnað til lagaheimilda, sem eigi eru til. Því má auðvitað svara, að þess konar agnúa megi laga í nefnd.
Jeg skal ekki fara út í einstök atriði, en benda vil jeg á það, að ekki mun frv. þetta hafa verið mikið hugsað í sumum atriðum. Skal jeg nefna sem dæmi, að tollurinn af gulli virðist vera settur óhæfilega hátt eftir frumvarpinu. Tökum t. d., að banki flytti inn í landið ½ miljón króna í gulli. Eftir frumv. ætti hann að greiða í toll 15 þús. kr. Þetta er að eins einstakt dæmi, og má búast við, að það verði athugað ásamt öðru, sem finna má að frumvarpinu.
Annað mál er það, að vera má., að heppilegra sje að ýmsu leyti, að leggja toll á verð en þunga. Þó telja skattfræðingar miklu örðugra eftirlit með verðtolli. Það er satt, að í sumum löndum er hafður, eða hefir verið til skamms tíma, verðtollur, en mjög hafa sumir látið illa yfir þeim tolli, vegna eftirlitsins.
En svo jeg snúi aftur að stefnu þeirri, sem frumvarpið hvílir á, þá skilst mjer svo, að ef miðað er við verðmæti, þá hækki tollurinn eftir því, sem varan hækkar í verði. Tökum t. d. dýrtíð, eins og nú; nú eru kolin 100% dýrari en í fyrra. Eftir frumv. skilst mjer, að tollurinn hækki að sama skapi. Þetta atriði er vert að athuga.
Það leynir sjer ekki, að frumv. er . mjög lítið undirbúið, og er ilt að flytja á þingið frumv. svo óvandlega gjört. Þingið getur ekki á svo stuttum starfstíma, sem það hefir, afgreitt jafnmikilsvert mál. Þess vegna held jeg, að þótt mörgum sje ekki vel við vörutoll, þá sje betra að bíða við í bráðina, heldur en að hleypa í gegn svo algjörlega óundirbúnu frumvarpi.