13.08.1915
Efri deild: 31. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 251 í B-deild Alþingistíðinda. (215)

30. mál, vörutollaframlenging

Karl Einarsson:

Jeg vil leyfa mjer að benda háttv. flutningsmanni að tillögunni á þingskjali 316 á, að mjer sýnist hún ekki vel geta fallið aftan við greinina í frumvarpinu. Jeg vil því skjóta því til háttv. flutningsmanns, hvort hann vilji ekki að málið sje tekið út af dagskrá, og tekið aftur fyrir á morgun.