26.07.1915
Neðri deild: 16. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1393 í B-deild Alþingistíðinda. (2157)
42. mál, Möðruvellir í Hörgárdal
Flutnm. (Magnús Kristjánsson):
Eins og. háttv. þingmönnum er kunnugt, hafa verið lögð hjer fram skjöl þessu máli viðvíkjandi. Gjöri jeg ráð fyrir, að þeir hafi kynt sjer þau eða gjöri það, ef þeir hafa ekki gjört það enn. Um jörðina er það að segja, að eftir að skólinn fluttist þaðan leit út fyrir, að erfitt yrði að fá álitlegan ábúanda. Jörðin er erfið og þarf kraft til að hagnýta sjer hana, svo vel sje. Þó fór svo, að þessi maður, sem nú býr á jörðinni, rjeðist í að taka hana til ábúðar. Tel jeg það vel farið. Gæti annars hafa farið svo með þessa jörð, sem mörg önnur höfuðból, að hún hefði verið setin landinu til skaða og skammar. Það er ekki til of mikils ætlast, að þessi maður hefði fengið einhverja viðurkenningu fyrir það, hversu vel hann hefir setið þær jarðir, er hann hefir haft til ábúðar, og fyrir þau mikla störf, sem hann hefir unnið í þarfir almennings. Það er ekki óeðlilegt, að honum leiki hugur á að eignast jörð, sem hann vill sýna sóma. Hann slepti annari góðri jörð, þar sem hann bjóst við að fá þessa keypta. Hann hefir nú leitast fyrir um það, en sýslunefnd orðið óþjál í þessu máli og lagst á móti sölunni. Hún hefir sagt, að þessi jörð sje sjálfsögð sem prestsetur, skólasetur, og enn fremur, að hún væri sjerlega vel fallin til sundurskiftingar fyrir grasbýli. Þessi ummæli sýslunefndar eru öll rækilega hrakin í skjölum þeim, senn minst er á hjer að framan. Jeg ætla ekki að fara að taka það upp hjer, en að eins óska, að þingmenn kynni sjer skjölin.
Jeg ætla ekki að fara að hreyfa þeirri stefnu, sem hjer hefir komið fram, um að fresta þjóðjarðasölulögunum, en hvernig sem um það fer, tel jeg sjálfsagt, að þeim, sem hafa gjört ráðstafanir í því skyni, að fá jarðir sínar keyptar, verði veittur kostur á því, en ekki sviftir rjettinum til þess, hvað sem lögunum líður.
Að endingu óska jeg þess, að háttv. deild taki þessu máli vel, og veiti heimild til þess, að jörðin fáist keypt, og treysti jeg deildinni til þess að ráða fram úr því á heppilegan hátt.