26.07.1915
Neðri deild: 16. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1397 í B-deild Alþingistíðinda. (2161)

42. mál, Möðruvellir í Hörgárdal

Bjarni Jónsson:

Það er út af nefndarskipuninni, að jeg stend upp. Mín tillaga er sú, að kosin sje sjerstök jarðasölunefnd og frumv. vísað þangað, með því að fleiri frumv. þessu lík geta komið fram nú. En ótækt tel jeg, að vísa frumv. til landbúnaðarnefndar, með því að hjer er ekki um búnaðarmál að ræða.