31.07.1915
Neðri deild: 21. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1423 í B-deild Alþingistíðinda. (2206)

54. mál, póstsparisjóðir

Framsm. (Guðmundur Hannesson):

Jeg vildi að eins gjöra þá athugasemd, að það mundi hafa litla þýðingu, að vísa þessu máli aftur til sömu nefndarinnar. Hún hefir þegar athugað það. Og þótt farið yrði að bæta við hana manni, eða mönnum, þá kæmi mjer það á óvart, ef hann eða þeir fyndu svo margt athugavert við frumv., að verulegar breytingar yrðu á því gjörðar við nýja athugun.