10.07.1915
Efri deild: 3. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í B-deild Alþingistíðinda. (228)
60. mál, vélgæsla á gufuskipum
Ráðherra:
Þetta frv. stendur í sambandi við 2. frv. á dagskránni, vjelstjóraskólann. Það er komið fram fyrir atbeina vjelstjórafjel. Íslands, með því að sjálfsagt þótti, að setja ný skilyrði fyrir atvinnu við vjelgæslu á skipum, um leið og hert er á kröfunum um sjerþekkingu vjelamanna. Jeg vona því, að hv. deild taki frv. vel.