16.08.1915
Neðri deild: 34. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1563 í B-deild Alþingistíðinda. (2306)

128. mál, rjúpnafriðun

Guðm. Eggerz:

Fyrir skömmu var afgreitt hjer frá deildinni frumvarp til laga um friðun fugla. Það hefir nú verið felt í Ed. Jeg tel hæpið, að hægt sje, samkvæmt þingsköpunum, að koma koma fram með þetta frumv. nú, og því ekki ástæða til, að deildin leyfi því að koma til umræðu.