30.07.1915
Efri deild: 19. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í B-deild Alþingistíðinda. (231)
60. mál, vélgæsla á gufuskipum
Framsögum. (Karl Finnbogason):
Jeg tel enga nauðsyn rækilegrar framsögu í máli þessu, því í áliti nefndarinnar er gjörð grein fyrir þeim breytingum, sem efnisbreytingar eru, svo það getur engin ástæða verið til þess að taka það hjer upp. Hitt eru að eins orðabreytingar. Jeg vænti þess, að háttv. deild samþykki breytingar nefndarinnar, og lofi frumvarpinu síðan að ganga áfram.