23.08.1915
Neðri deild: 40. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1583 í B-deild Alþingistíðinda. (2337)

116. mál, sóknargjöld

Framsm. (Benedikt Sveinsson):

Jeg hefi rjett í þessu fengið að vita, að hitt frumv. er vel geymt í nefnd í Ed., og engin hætta á, að það komi þaðan fyrst um sinn. Verð jeg því að halda því fram, að hagkvæmast sje, að senda þetta frumv. til efri deildar, ef sama nefndin á að fjalla um bæði frumv.