10.09.1915
Neðri deild: 56. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 2272 í B-deild Alþingistíðinda. (2776)

143. mál, útibú frá Landsbankanum á Austurlandi

Bjarni Jónsson:

Jeg vil að eins benda á, að það er ekki þýðingarlaust, að samþykkja dagskrá, þótt í henni felist ekki annað en það, sem í lögunum stendur. Því oftar sem Alþingi árjettar vilja sinn við stjórnina, því meiri von er um, að honum verði framgengt.