09.08.1915
Efri deild: 27. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 295 í B-deild Alþingistíðinda. (319)
12. mál, landhelgissjóður Íslands
Framsm. (Sig Stefánsson) :
Jeg hefi ekki miklu við að bæta. Jeg vil að eins leiðrjetta það, er háttv. 2. kgk. þm. (Stgr. J.) sagði, að fje það, sem lagt er í þennan sjóð, væri bundið um aldur og æfi. Þetta er ekki rjett, því meiri tekjur sem sjóðurinn fær, því styttra verður þess að bíða, að tilgangi hans verði náð. Ef Norðurálfuófriðurinn hefði ekki skollið á, þá hefði sjóðurinn á fáum árum eflst svo, að hann hefði getað komið landhelgisvörnum að. verulegu liði. Mjer þykir slæmt, að einn meðnefndarmaður minn var á móti frestun málsins; mjer þykir slæmt að vera á móti nefndinni. Jeg gjöri það því að tillögu minni, að málið sje nú tekið út af dagskrá, til þess að nefndinni gefist kostur á, að leita álits fjárlaganefndar þingsins um það, hvort þær fjárhagsins vegna telji nauðsynlegt, að tefja framgang málsins þar til í þinglok, eins og mjer skilst að sje tilætlun hinnar rökstuddu dagskrár.