14.08.1915
Efri deild: 33. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í B-deild Alþingistíðinda. (329)

12. mál, landhelgissjóður Íslands

Karl Finnbogason :

Jeg vil leyfa mjer að stinga upp á því, að mál þetta verði tekið út af dagskrá. Málið er mjög mikils vert, en þrír af hv. deildarmönnum eru ekki viðstaddir, og jeg álít að ekki sje rjett, að ganga til atkvæða um það á meðan ekki eru allir þingmenn viðstaddir.