04.09.1915
Efri deild: 52. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í B-deild Alþingistíðinda. (4)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Forseti :

Háttv. framsögumaður hefir óskað þess, að fjárlögin sjeu ekki tekin fyrir öll í einu lagi, en þar sem það hefir ekki verið venja hingað til, þá vildi jeg leyfa mjer að bera það undir háttv. þingdeildarmenn, hvort þeir sjeu því sammála.