30.08.1915
Efri deild: 46. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í B-deild Alþingistíðinda. (429)

104. mál, útflutningsgjald

Framsögumaður (Kristinn Daníelsson):

Jeg vona að háttv. deildarmenn hafi kynt sjer nefndarálitið á þgskj. 545. Þar er gjörð nákvæm grein fyrir frumv., svo það er óþarfi að taka þær ástæður upp aftur, en með skýrskotun til þess, er þar segir, leyfi jeg mjer fyrir nefndarinnar hönd að óska þess, að háttv. deild samþykki frumv. óbreytt.