07.09.1915
Efri deild: 54. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í B-deild Alþingistíðinda. (49)
108. mál, fjárlög 1916 og 1917
Björn Þorláksson:
Jeg vil segja örfá orð um brtt. á þgskj. 784.
Svo sem kunnugt er, er tillaga þessi borin fram af hv. 6. kgk. þm. (J. Þ.), og svo kynduglega borin fram, að fávísir menn gætu freistast til að halda það, að hún sje borin fram af velvild til Sigurðar regluboða Eiríkssonar og fjelagsins. En jeg hygg að flestir skilji hvað meint er með henni; það sjeu flestir farnir að skilja svo vel framkomu hv. 6. kgk. þm. (J. Þ.) hjer í þinginu, að þeim sje ljóst, að þar ræður velvildin ekki. Sigurður Eiríksson hefir ekki farið fram á neinn styrk, og mjer er kunnugt um, að hann vill engan nýjan styrk. Jeg tek þetta fram, ekki einungis gagnvart hv. 6. kgk. þm. (J. Þ.), heldur líka háttv. þm. Ísaf. (S. St.), er taldist mundi vera með þeim lið, en hvort það er af sömu. velvildinni, skal jeg ósagt láta.
En úr því jeg stóð upp, þá get jeg ekki látið vera, að minnast á ummæli háttv. þm. Ísaf. (S. St.) um afskifti goodtemplara af öðrum málum. Hann talaði um, að goodtemplarar væru að sletta sjer fram í mál, sem væru fyrir utan þeirra verkahring, en þar sem jeg er kunnugur, kann jeg þess engin dæmi. Auðvitað geta þeir ekki látið ýms mál afskiftalaus, t. d. hvernig farið er með bannlögin sjálf Það er ekki nýtt, að templurum sje brigslað um ofstæki, hvorki hjer í háttv. deild nje utan þings, og jeg vil ekki neita því, að þeir á stundum hafi fylgt málum sínum af talsverðu kappi, en því er ekki að heilsa. nú. Það eru orðin hausavíxl á þessu. Ofstækið er algjörlega orðið andbanningamegin, bæði utanþings og innan. Um ofstæki andbanninga á þingi ber bestan og ljósastan vott öll framkoma hv. 6. kgk. þm. (J. Þ.). Jeg verð því að vísa þessum ummælum aftur heim til föðurhúsanna, því jeg veit, að hv. þm. Ísaf. (Sig. St.) er í hjarta sínu andbanningur, þó hann, eins og hv. 6. kgk. þm. (J. Þ.), væri með því að setja bannlögin og greiddi þeim atkv.En báðir þessir þingmenn virðast nú telja. sjer það sæma, að hamast á móti lögunum og þar með sjálfum sjer. (Sig. Stefánsson: Jeg gjöri það ekki).