31.07.1915
Efri deild: 20. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 422 í B-deild Alþingistíðinda. (532)

64. mál, aðflutningsbann á áfengi

Eiríkur Briem:

Jeg vil skjóta því til hv. forseta; að hlutast sje til um, að frv. sjeu ekki prentuð upp aftur, án þess að grein sje gjörð fyrir því. Heima hjá mjer lágu bæði þingskj. 136, en jeg tók að eins eitt af tveimur, og hefi ekki hugmynd um, hvort hefir verið hið rjetta. Eftirlit með þessu þarf því nauðsynlega að aukast.