13.09.1915
Efri deild: 60. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 674 í B-deild Alþingistíðinda. (765)

150. mál, bráðabirgðaverðhækkunartollur

Sigurður Stefánsson :

Jeg hefi ekki haft tíma til þess að athuga þetta frumv. og eins mun vera um fleiri hv. þm. Jeg vil því, að málinu sje vísað til nefndar, ef það verður ekki til þess að tefja málið, því jeg vil að það nái fram að ganga. En jeg veit ekki, hvort nefndin getur verið búin með störf sín eftir hæfilegan tíma, eða svo að hægt sje að taka málið á dagskrá á morgun.