05.08.1915
Efri deild: 24. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 725 í B-deild Alþingistíðinda. (834)

83. mál, Bjarghús í Þverárhreppi

Karl Einarsson :

Jeg vil ekki tefja umr. um þetta mál. En jeg lít svo á, að frv. sje komið fram af því, að eðlilega leiðin gekk ekki. Jeg álít að skoða beri þetta sem skipun til stjórnarráðins að selja jörðina, en ekki heimild.

Þar eð ekki hefir verið farið eftir venjulegum reglum með mál þetta, finst mjer ástæða til þess að skipa þriggja manna nefnd til þess að athuga hvort löglega hefir verið farið að eða ekki.