13.01.1917
Sameinað þing: 6. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í B-deild Alþingistíðinda. (1005)

Þinglausnir

Forsætisráðherra (Jón Magnússon):

Með því að tími sá er liðinn, er þessu aukaþingi var ætlaður í fyrstu og frestir þeir, er þessu þingi voru ætlaðir, þá lýsi jeg yfir því, í nafni Hans Hátignar konungsins að þessu 27. löggjafarþingi Íslendinga er slitið.