02.01.1917
Neðri deild: 12. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í B-deild Alþingistíðinda. (182)

21. mál, ráðstafanir út af Norðurálfuófriðnum

Pétur Jónsson:

Jeg er fyllilega samþykkur hv. flutnm. (M. G.), að ekki þurfi að vísa þessu frv. til sjerstakrar nefndar. Því nefnd sú, sem riðin var við samning frumvarpsins, mun athuga það framvegis, og væri æskilegt, að þeir hv. þm., sem fyndu eitthvað að athuga við það, vildu snúa sjer til þessarar nefndar með athugasemdir sínar.