18.12.1916
Neðri deild: 2. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í B-deild Alþingistíðinda. (238)

2. mál, útflutningsgjald af söltuðu sauðakjöti

Bjarni Jónsson:

Af því að jeg hefi engar upplýsingar sjeð eða heyrt koma fram um það, hvernig á þessum 300 tunnum stendur, þá langaði mig til að spyrjast fyrir um það hjá nefndinni, hver það sje, sem á að fá þær, og hvernig á þessum afslætti standi. Þetta er svo lítið í flestra augum, að það er gaman að fá að vita það, hver sá málsaðili er, sem lýtur að svona litlu.