10.01.1917
Neðri deild: 19. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í B-deild Alþingistíðinda. (326)

44. mál, útflutningsgjald af síld

Forsœtisráðh. (Jón Magnússon):

Um málið sjálft finn jeg ekki ástæðu til að ræða að svo stöddu, og hefi ekki neinar frekari upplýsingar að gefa en hæstv. fyrv. ráðherra (E. A.) hefir gjört, en jeg vona, að háttv. deild íhugi grandgæfilega bendingar þær, er hann nú hefir gefið.