11.01.1917
Neðri deild: 21. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í B-deild Alþingistíðinda. (34)

1. mál, nefnd til að ákveða verð á vörum

Framsögum. (Þorleifur Jónsson):

Frv. þetta er nú komið aftur frá háttv. Ed., og hefir fengið þá eina breytingu, að í stað orðsins »ráðherra« í fyrirsögninni hefir verið sett »ráðuneyti«. Þessi breyting er sjálfsagt formsatriði, og sá því nefndin ekki ástæðu, til að gefa nefndarálit um þessa breytingu, en leggur til, að frv. verði samþ. eins og það liggur hjer fyrir.