11.01.1917
Neðri deild: 21. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 342 í B-deild Alþingistíðinda. (442)
46. mál, framlenging á útflutningsleyfi fyrir íslenskt sauðkjöt
Flutnm. (Sveinn Ólafsson):
Jeg sje ekki ástæðu til að tala mikið um þetta mál, sem liggur svo ljóst fyrir öllum. Tilmæli hafa borist hingað til þingsins um þetta mál, og telja víst allir sjálfsagt, að verða við þeim. Hjer og þar um landið liggur mikið kjöt, sem ekki hefir komist út, og veldur víst strand Goðafoss því mest.
Annað hefi jeg ekki um málið að segja.