09.01.1917
Neðri deild: 18. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í B-deild Alþingistíðinda. (465)
30. mál, lán til flóabáta
Pjetur Jónssou:
Jeg mundi helst óska að málið væri tekið út af dagskrá. Jeg hafði búist við að koma fram með viðaukatill., en sá mjer það ekki fært í þetta sinn. Það vakti fyrir mjer, að fyrst vjer á annað borð erum farnir að auka tillögur til fjarðabátanna í öðrum hjeruðum, þá mundi einnig hafa þurft að auka styrkinn til Eyjafjarðarbátsins. En vjer þm. þessara hjeraða vorum ekki tilbúnir að koma fram með rökstudda till. hvernig báturinn ætti að vera enda er það örðugt nú, um þessar mundir. En sjálfsagt væri eins mikil nauðsyn, að auka styrkinn þarna sem annarsstaðar.
Reksturkostnaður hefir aukist þar, sem annarsstaðar. Mjer dettur í hug, að skjóta því fram, að ef tilmæli koma fram til aukins styrks til bátsins, og stjórnin telur næg rök fyrir beiðninni, þá megi stjórnin veita þenna styrk upp á væntanlegt samþykki þingsins í sumar.