09.01.1917
Neðri deild: 18. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í B-deild Alþingistíðinda. (475)

41. mál, skaðabætur til farþeganna á Flóru

Þórarinn Jónsson:

Jeg vil leyfa mjer að gjöra þá fyrirspurn til háttv. fjárveitinganefndar, hvort nokkur gangskör hafi verið gjörð að því, að fá þetta goldið frá rjettum hlutaðeigendum, Bretum, og hvort hún getur nokkuð sagt um álit ensku stjórnarinnar á þessu máli. — Jeg lít svo á, að það sje ótvíræð skylda Breta, að greiða fólkinu skaða bæturnar.