11.01.1917
Neðri deild: 21. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 378 í B-deild Alþingistíðinda. (494)

43. mál, skipagöngur sameinaða gufuskipafélagsins

Forsætisráðh, (Jón Magnússon):

Hv. framsm. (M. P.) mæltist til að fá álit ráðuneytisins um mál þetta. Þar til er því að svara, að það hefir enn ekki átt kost á að kynnna sjer það betur en háttv. nefnd, sem um það hefir fjallað. Annars get jeg lýst því yfir, að það mun fara að vilja Alþingis í þessu máli, eftir því sem frekast er unt.

Meira get jeg ekki sagt um mál þetta að svo komnu.