08.01.1917
Neðri deild: 17. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 492 í B-deild Alþingistíðinda. (559)

32. mál, skipun bankastjórnar

Gísli Sveinsson:

Áður en jeg fer út í umræðurnar, vil jeg mælast til þess, að stjórnin svari fyrirspurnum þeim, — því að fyrirspurnir má kalla það —, þótt ekki hafi komið fram í því formi beinlínis, sem fram hafa komið frá 2 þm.

1. Hvort meiningin sje, að skipa ekki mann í bankastjórnina fyrst um sinn; og

2. hvort stjórnin muni ekki taka till. til greina, ef hún verður samþykt.