04.01.1917
Neðri deild: 14. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 538 í B-deild Alþingistíðinda. (608)

25. mál, kolarannsókn og kolavinnsla

Flutnm. (Bjarni Jónsson):

Mjer er það mesta ánægja að ganga inn á þessa breytingu við till. mína, og ætla jeg, að jeg hafi getið þess í framsögu minni, að ekki yrði óhugsandi að höfn yrði dýrari en járnbrautarspotti, og mundi því eins arðvænlegt að rannsaka kolalög lengra upp í landi, en af athugaleysi tók jeg ekki ákvæði um það í till. mína.