12.01.1917
Neðri deild: 23. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í B-deild Alþingistíðinda. (631)

35. mál, lán til garðræktar

Flutnm. (Bjarni Jónsson):

Jeg hefi ekki sjeð að till., sem jeg bar hjer fram, og sem vísað var til landbúnaðarnefndarinnar, hafi enn sjeð dagsins ljós. Nú vildi jeg spyrja hæstv. forseta, hvort hann vildi ekki leyfa þau afbrigði, að þetta mál yrði tekið fyrir, og ef það er ekki hægt, hvort að forseti vildi þá ekki leyfa skrifara landbúnaðarnefndarinnar að hrista höfuðið, ef nefndin ætlar sjer ekki að koma málinu áfram, en annars segja „jam“. Væri þau afbrigði eigi meiri en ýms önnur, sem nú tíðkast.