12.01.1917
Neðri deild: 26. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 569 í B-deild Alþingistíðinda. (651)

Þinglok neðri deildar

Forseti:

Þá er starfi þessarar deildar lokið á þessu þingi. Áður en fundi er slitið, finn jeg mjer skylt að þakka hv. þingmönnum fyrir góða samvinnu, og sjerstaklega skrifurunum fyrir góða aðstoð, sömuleiðis öðrum starfsmönnum þingsins, og þá sjerstaklega skrifstofustjóra. Óska jeg, að starf vort megi verða landi og þjóð til heilla. Að lokum vil jeg óska utanbæjarþingmönnum farsællar heimferðar, og vona, að vjer allir hittumst heilir að sumri.