12.01.1917
Neðri deild: 26. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í B-deild Alþingistíðinda. (66)

4. mál, Íslandsbanka leyft að auka seðlaupphæð

Forsætisráðh. (Jón Magnússon):

Viðvíkjandi yfirlýsing þeirri, sem hv. þm. V.-Sk. (G. S.) óskar eftir, skal jeg geta þess, að stjórn bankans hefir afdráttarlaust látið það uppi, að hún muni ekki nota sjer heimildina, ef hundraðsgjaldið verður hækkað úr 2%.

Vona jeg því, að frv. þetta fái að ganga fram óbreytt hjer, og að ekki sje farið að deila um þetta við háttv. Ed.