15.12.1916
Efri deild: 1. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (706)

Stjórnarfrumvörp lögð fram

Ráðherra (Einar Arnórsson):

Jeg leyfi mjer að leggja fram fyrir háttvirta deild þrjú lagafrumvörp, er byggjast á bráðabirgðalögum, sem gefin hafa verið út samkvæmt heimild í stjórnskipunarlögum 19. júní 1915, 6. grein, og fylgja þau lög frumvörpunum og þannig lögð fyrir deildina samkvæmt 6. grein sömu stjórnskipunarlaga.

Jeg vænti þess, að hæstv. forseti taki þessi mál á dagskrá og hv. deild taki þau síðan til meðferðar á venjulegan hátt.